Tröllið

Tröllið 43 km er fjallahlaup með 1870 metra hækkun þar sem hlaupið er upp á bæjarfjallið Súlur og þaðan eftir fjallshryggnum inn á Glerárdal. Krefjandi leið í stórbrotnu umhverfi.

Hlaupið hefst í Kjarnaskógi, þaðan er hlaupið upp á hamrana fyrir ofan skóginn þar sem er frábært útsýni yfir bæinn og fjörðinn. Eftir um 300 m hækkun á góðum stíg er farið framhjá skátaskálanum Gamla og svo áfram yfir klappirnar og fram hjá öðrum skátaskála sem heitir Fálkafell. Þaðan er hlaupið niður að Súlubílastæði þar sem er fyrsta drykkjarstöð. Eftir hana hefst fyrsta alvöru hækkunin upp stikaða gönguleið á bæjarfjallið Súlur. Eftir rúma 5 km og 900 m hækkun er toppnum náð og þá er haldið áfram yfir á Syðri Súlur og svo suður eftir fjallgarðinum, farið framhjá Krumma og að Litla Krumma en þá er beygt niður í Lambárdal, yfir Lambárjökul og upp á Lambáröxl. Þaðan niður í Glerárdal að gönguskálanum Lamba. Þessi hluti leiðarinnar er grýttur og brattur á köflum og mælum við með því að hér sé varlega farið. Hjá Lamba er drykkjarstöð sem björgunarsveitin Súlur sér um. Úr Lamba er hlaupin stikuð gönguleið 11 km til baka að Súlubílastæði. Leiðin liggur þaðan yfir Glerárgil og fylgir svo nýlegum stíg sem kenndur er við Fallorku meðfram Glerá. Farið yfir Hlíðarbraut og haldið áfram meðfram Glerá að Háskólanum á Akureyri. Að lokum eru síðustu 23 kílómetrarnir hlaupnir meðfram götum bæjarins niður í miðbæ Akureyrar þar sem hlaupið endar.

Keppendur í Tröllinu verða að vera með track af leiðinni í úri eða síma.

Hér er hægt að sækja gpx skrá af leiðinni.

Einnig er hægt að sækja skrána í Garmin Connect þar heitir það SV2023 Tröllið 43km

 

Rástími

  • Hlaupið hefst í Kjarnaskógi kl. 8.00
  • Rútur fara frá Hofi í Kjarnaskóg kl. 7.15

Tímamörk

  • Miðað er við að hlauparar geti klárað hlaupið á níu klukkutímum, sem gefur um það bil 300 ITRA stig.
  • Til að ná tímatakmörkum verða hlauparar að vera farnir út af drykkjarstöð á Súlubílastæði á innan við 7 klst og 30 mín eða kl.15:30. Þeir hlauparar sem ná ekki þessum tímatakmörkum þurfa að hætta í hlaupinu. Þessi regla á við um alla þátttakendur og er ekki hægt að semja við starfsmenn á staðnum um aðra kosti.

Verð

Skráningarfrestur: 01.07.2024, 23:59

  • 20.500 kr. (Verð til 31.01.2024 23:59)
  • 23.200 kr. (Verð til 01.06.2024 23:59)
  • 27.300kr.  (Fullt verð) 

Skyldubúnaður

  • Brúsi/glas 0,5 l lágmark (ekki verða nein glös á drykkjarstöðvum)
  • Sími með næga hleðslu og neyðarnúmerið 112 vistað inn ásamt símanúmeri hlaupastjóra: 822 4115
  • Álteppi að lágmarksstærð 130 x 200 cm
  • Flauta
  • Jakki
  • Buff/húfa
  • Vettlingar
  • Teygjuband/teip (100 x 5 cm)
  • Orka sem samsvarar að lágmarki 600 kkal þegar lagt er af stað

Eftirfarandi gæti bæst við sem skyldbúnaður ef veðurspá verður slæm, verður gefið út tveimur dögum fyrir hlaup

  • Háir sokkar/kálfahlífar eða síðbuxur
  • Auka peysa
  • Vatnsheldir vettlingar
  • Vatnsheldur jakki

Stafir: Leyfilegt er að hlaupa með stafi en reglan er sú að þá þarf að hlaupa með þá allt hlaupið - þú byrjar með stafi - endar með stafi.

Þátttakendur þurfa, á meðan hlaupinu stendur, að hafa skyldubúnað á sér og vera viðbúnir því að starfsmenn hlaupsins óski eftir því að sjá búnaðinn áður en keppni hefst, meðan á henni stendur og í endamarki. Ef skyldubúnað vantar er tímavíti (1560 mínútum bætt við lokatíma viðkomandi sem fer eftir hve mikinn skyldubúnað vantar). Hægt er að vísa þátttakanda úr keppni ef mikinn skyldubúnað vantar.

Drykkjarstöðvar

    • Á Súlubílastæði eftir 10 og 35 km: Drykkir og næring
    • Lambi eftir 24 km: Drykkir og næring
    • Á Fallorkustíg eftir 39 km: Vatn, sjálfsafgreiðsla