Krakkahlaup

Krakkahlaupið er fyrir börn 12 ára og yngri og fer fram í Kjarnaskógi á föstudegi kl. 16.00

Hvar og hvenær

  • Hlaupið er haldið í Kjarnaskógi kl. 16.00 á föstudegi og er rás- og endamark á túninu ofan við Kjarnakot.
  • Skráning og afhending gagna er á staðnum frá kl. 15.15-15.45.
  • Að hlaupi loknu er boðið upp á pylsur frá Kjarnafæði og drykki frá Ölgerðinni.
  • Öll velkominn - enginn aðgangseyrir


Vegalengdir og aldursflokkar



  • 5 ára og yngri: ca. 400 m (1 stuttur hringur) - Fæðingarár 2021 og síðar
  • 6-8 ára: 800 m (2 stuttir hringir) - fæðingarár 2018, 2019, 2020
  • 9-10 ára: 1,2 km (1 lengri hringur) - fæðingarár 2016, 2017
  • 11-12 ára: 2 km (2 lengri hringir) - fæðingarár 2014, 2015