Fálkinn

Fálkinn er 19 km stígahlaup með 530 m hækkun. Skemmtileg leið sem flestir ráða við.

Hlaupið hefst í Kjarnaskógi. Þaðan er hlaupið upp á hamrana fyrir ofan skóginn þar sem er frábært útsýni yfir bæinn og fjörðinn. Hlaupið er að skátaskálanum Fálkafelli og þaðan niður á Súlubílastæði. Frá Súlubílastæði liggur leiðin yfir Glerárgil og fylgir svo nýlegum stíg sem kenndur er við Fallorku meðfram Glerá niður að Hlíðarbraut. Farið er yfir Hlíðarbraut og haldið áfram meðfram Glerá að Háskólanum á Akureyri. Að lokum eru síðustu 2–3 kílómetrarnir hlaupnir meðfram götum bæjarins niður í miðbæ Akureyrar þar sem hlaupið endar.

  • Rástími
  • Hlauparar verða ræstir í nokkrum hópum eftir áætluðum tíma, hröðustu hlaupararnir fyrstir kl. 11.30 og aðrir hópar þar á eftir með nokkurra mínútna millibili.
  • Rútur fara frá Hofi í Kjarnaskóg kl. 10.45-11.00.


Tímamörk

  • Miðað er við að hlauparar geti klárað hlaupið á fjórum klukkutímum.


Skyldubúnaður

  • Brúsi/glas 0,5 l lágmark (ekki verða nein glös á drykkjarstöðvum)


Drykkjarstöðvar

  • Á Súlubílastæði eftir 10 km: Drykkir og næring